Monday, September 22, 2008

Back to reality

Góðan daginn góðir hálsar.
Það er alltaf pínulítil sorg sem fylgir því að vakna á mánudögum og átta sig á því að helgin sé búin. Ég upplifði það allavega í morgun, því er nú verr og miður. En nýrri viku fylgir ný helgi og bíð ég spennt eftir henni, að sjálfsögðu.
Þessi helgi var fínt. Foreldrar hans Svavars voru í heimsókn, það var mjög gaman. Á laugardaginn hitti ég þau aðeins og var svo bara að gera mig tilbúna til að fara í afmælið til Matthildar. Ég og Sara lögðum svo af stað og komumst heilar á húfu á leiðarenda. Það var ekkert smá gaman, við skemmtum okkur held ég langflest alveg konunglega. Það var allavega alveg yndislegt að hitta allar stelpurnar, Nínu Guðrúnu, Örnu, Ólafíu og Telmu. Það var frábært :) Ég var reyndar aðeins og hress, missti mig í hóstasaftinu hans afa og var farin að sofa um tvö leytið held ég. Heilsan í gær var líka bara eftir því, alveg yndislegt. Svo vorum við bara í gær með foreldrum hans Svavars, borðuðum lambalæri saman og fórum svo öll í bíó. Fórum á Mamma Mia, hún var ótrúlega skemmtileg. Ekkert smá gaman að hafa loksins séð hana, er búin að reyna að draga Svavar á hana síðan hún var sýnd á Ísafirði, og það eru næstum því tveir mánuðir síðan.

Ég ákvað að setja hérna inn eina mynd af mér og Svavari, en hún var tekin á útskriftadeginum hans. (Svona aðallega fyrir þig mamma mín, sýni þér restina seinna).
Aaaa sjitt, ég og Sara ætlum að fara í spinning á morgun! Ég er að deyja úr stressi. Vanalega er ég alveg ágætlega dauð eftir 20 mínútur á hjólinu en þarna erum við að tala um svona 40-50 mínútur, engin miskunn! En ég hlakka líka til, þetta verður bara gaman :) Þetta er að byrja í kópavogslauginni í dag þannig að ætlum að skella okkur á morgun, komumst ekki í dag því Sara er að vinna. Dugnaðarfákur! Mwehe.
Annars er ekkert mikið að frétta af mér. Ég þarf bara að vera dugleg að læra í þessari viku, ætla að setja mér það markmið að vera búin að klára öll verkefnin í þessari viku sem ég á að vera búin með 1.október. Núna ætla ég að vera dugleg. Grey's Anatomy verður bara að bíða smá.

Annars ætla ég ekki að hafa þetta lengra í dag, ætla að fara að hlusta á kennarann í fjölmiðlafræði. Stúlkur mínar, takk fyrir laugardagskvöldið ;* Búin að sakna ykkar ótrúlega mikið.
Hafiði það gott öllsömul. Bæ.

4 comments:

Anonymous said...

jáá Jónína mín þú misstir þig aðeins í hóstasaftinu!! =)
en það var samt ótrúlega gaman þrátt fyrir það og æðislegt að sjá stelpurnar!
En jáá þetta verður bara gaman í spinningnum! við höfum gott af þessu hehe;D

En ógó flott blogg beibikeiks og þetta er geðveik mynd af þér og Svabba hehe;D

En ég ætla að halda áfram að hlusta á hann Hannes!(y) og bögga þig múhahahah! (a)

Love jú beibý;**

SaraH

Anonymous said...

Hahaha, takk fyrir síðast ;) Það var rosalega gaman að hitta ykkur Söru. Hlakka til að sjá þig næst kv. Arna

Anonymous said...

Hæ Jónína mín hva varst þú með slæman " hósta " ??????haha jæja nú styttist óðum í að við hittumst
skvísan mín og takk fyrir þessa fínu mynd þið eruð nú voða krúttleg,´mömmuknús og kossar frá mér til þín hlakka til nað sjá þig
5.okt

Anonymous said...

Jég er alveg sammála þér, mánudagar er hell !
En gasalega eruð þið sætt par, langar bara að klípa ykkur í kinnarnar og segja :"dúllídúllídúlli". Það væri góður dagur.
En ég hlakka til að fá þig heim sæta...drífðu þig heim til mín :*
Ingibjörg