Halló hjúkka!
Í dag eru nákvæmlega 20 og 2 dagar þangað til að ég og Sara ætlum að koma vestur. Reyndar höfum við nælt okkur í aukafarþega, Addý ætlar að koma með okkur. Við erum allar fátækir námsmenn þannig að fínt að geta bara deilt bíl og bensíni, þá er þetta nú ekkert svo stórvægilegt. Maður fer allavega ekki á hausinn við þessa ferð, það er nú víst. O neinei, þvert á móti. Því að ég ætla bara að vera í fæði á Hótel mömmu, tjilla og helst ekki að opna veskið mitt einu sinni. Mikið verður það nú ljúft. Ég hlakka svo til að ég fæ tár í augun við tilhugsunina! Og þetta er líka svo fljótt að líða ..
... Ójá! Núna er sko engin leti lengur. Það er ekki setið með tærnar útí loftið, borað í nebbann og horft á Grey's Anatomy allan liðlangan daginn. Núna hefur alvara lífsins tekið við af einhverru alvöru. Loksins kannski bara. Núna þarf ég að skipuleggja alla dagana mína svo að ég hafi tíma til að gera það sem ég þarf og langar til að gera. Tökum daginn í dag sem dæmi. Fór í skólann til hálf 4, þaðan beint í ræktina, úr ræktinni beint heim að skrifa þetta blogg og svo eru tvö verkefni sem þarf að ljúka þegar bloggið er komið. Elda matinn, brjóta saman smá þvott og svo get ég farið í sturtu, tjillað og haft það næs. Kannski meira að segja að ég horfi á einn Grey's Anatomy þátt ef að Svavar leyfir mér að ráða fjarstýringunni. Já, kvöldin eru alltaf best. Því þau ætla ég að reyna að eiga alveg frí, bara til að hanga í leti. Annars nota ég þau í að læra ef þess þarf. Jájá, núna er sumsé allt byrjað á fullu. Skólinn alveg að drekkja mér í verkefnum, vinnan kemur sterk inn sem og ræktin og svo að sjálfsögðu heimilisstörfin okkar góðu kæru lesendur.
Þó ég sé kannski pínu þreyttari fyrir vikið þegar ég leggst á koddan á kvöldin þá get ég nú huggað mig við það að mér leiðist þó ekki á meðan og tíminn er enn fljótari að líða. Því það styttist óðum í allt. Ég veit samt ekkert hvað það er sem mér finnst vera að styttast í, allavega langa helgin, tökum bara einn hlut í einu.
Samt finnst mér alltaf eins og ég búi bara í Reykjavík tímabundið, mér finnst eins og ég sé bara að bíða eftir því að fara heim aftur. Fara heim og það sé allt eins og það var. En ætli ég verði nú ekki að ýta þeirri hugsun i burtu. Ég er komin til
Reykjavíkur og hér ætla ég mér að búa, nú allavega í einhvern tíma í viðbót. Annars er aldrei hægt að segja til um framtíðina, þess vegna er þetta nú allt saman birt með fyrirvara um breytingar. Hehe.
Reykjavíkur og hér ætla ég mér að búa, nú allavega í einhvern tíma í viðbót. Annars er aldrei hægt að segja til um framtíðina, þess vegna er þetta nú allt saman birt með fyrirvara um breytingar. Hehe.Stepbrothers! Stepbrothers! Stepbrothers! Ég og Svavar fórum á hana í bíó fyrir klinkið sem við höfðum safnað í bíósjóðinn okkar. Og hún var svo fyndin. Mér fannst það. Og honum fannst það reyndar líka. Ég hló og hló og hló. Jafn fyndna mynd hef ég ekki séð í langan tíma. Mig langaði bara að koma þessu á framfæri og ég hvet alla til að reyna sem fyrst að sjá þessa mynd. Alveg "möst" að sjá. Bætið þessu inná "to-do" listann ykkar lesendur góðir.
Annars fór ég á pínu skrall á síðustu helgi með Auði minni og Hrefnu minni. Hrefna eldaði ljúffengan kjuklingarrétt fyrir okkur og svo var sötrað og hlátrasköllin ómuðu. Takk fyrir mig stúlkur mínar.
Og á næstu helgi ætlar Matthildur megabeip að halda uppá afmælið sitt. Ég get ekki beðið. Nína Guðrún, Ólafía, Arna Sigríður og Telma ætla allar að láta sjá sig og það verður fagnaðarfundur. Nánari upplýsingar um þann viðburð síðar.
Annars ætla ég nú ekkert að hafa þetta neitt mikið lengra, mín bíður risastórt sálfræðiverkefni sem skila þarf á morgun og næstum því jafn stórt fjölmiðlafræðiverkefni sem átti helst að skilast í gær, en ég fékk að lengja deadline-ið þangað til á morgun.
...Þannig að ég kveð með miklum söknuði í hjarta. Tel niður dagana þangað til ég kemst til minnar heittelskuðu Flateyrar. Fjölskylda og vinir, ég sakna ykkar. Fólk sem búsett er í bænum eða nágrenni, þið eruð lukunnar pamfílar að hafa mig hér! Ég segi nú ekki annað. Nei grín.
Sælir!
Jónína Rut borgarbúi :)
4 comments:
Ó, elsku Jónína, Ísafjörður saknar þín svo mikið og Flateyri hlýtur að sakna þín enn meira. En bloggin þín eru ótrúlega skemmtileg að lesa svo ekki sé meira sagt, ég hlakka ótrúlega mikið að sjá þig um helgina og það varður sko ótrúlega gaman hjá okkur í afmælinu hennar Matthildar. Hafðu það gott, knús úr íslensku hjá Hrafnhildi.
Hello! :D
Aji þú ert svo góður penni. Takk enn og aftur fyrir greys seríuna, ég er gjörsamlega hooked, veit ekki hvað ég geri þegar ég klára 2.seríu,hehe.
Ennníveis... skemmtið ykkur geggjað vel í afmælinu án mín:)
Knús á þig sæta, þú ert svo dugleg að búa þarna ein í borg óttans!
Kveðja frá Noregi.
Ingibjörg Elín
Hæ ljúfan mín, það er allveg klárt að Flateyri saknar þín miklu meira,en í dag eru þó bara 20.dagar
þeir verða fljótir að líða þar sem er svo mikið að gera hjá þér,ég get trúað að það verði brjálað fjör um helgina þegar þið hittist dömurnar í afmælinu, bara gaman en munið samt að ganga hægt um gleðinar dyr (ég má segja svona ég er mamma þín haha ) en allavega ég get ekki beðið eftir að fá þig heim knús og kossar frá mér til þín
Ohhh veistu meira að segja ég sakna þín og þá er mikið sagt.
Það væri held ég allt öðruvísi fyrir mig að vera hérna ef að þú værir hérna.
Allavega sakna þín í drasl og ég vona að þú getir fundið tíma í pakkaðri dagskrá þegar þú kemur heim til að hitta stelpuna sem einu sinni samdi ljóðið : "Elsku Rónína mín, þú ert fín".
Farðu að drífa þig heim...
Ingibjörg Rún
Post a Comment