Saturday, September 27, 2008

Heima er best ...


... því verður seint mótmælt á þessum bæ! Ég og Svavar lögðum af stað í ferðalag á fimmtudaginn eftir skóla, leið okkar var heitið heim á leið. Við ákváðum það bara á síðustu helgi að skreppa heim um þessa helgi og það var líka bara ein sú besta ákvörðun sem ég hef tekið svo vikum jafnvel mánuðum skiptir. Ég ákvað að reyna að halda því leyndu að ég væri að koma vestur, sem gekk bara svona ágætlega. Mamma og Gunnar voru allavega ekkert smá hissa og nokkrar af stelpunum :) Það var alveg það skemmtilegasta. Að sjá svipinn á mömmu þegar ég og Svavar löbbuðum inn heima það var bara best í heimi. Annars er þetta bara búið að vera frábært. Hitti allar stelpurnar í gær í skólanum og svo hittumst við allar í gærkvöldi og elduðum okkur saman og vorum bara í Singstar og höfðu það kósí, alveg ótrúlega gaman. Vantaði reyndar Söru, það var verst. En ég get bætt upp fyrir það því að ég held að það séu bara 10 eða 11 dagar þangað til við ætlum að tralla okkur aftur vestur! Shiiiit, ég hlakka svo til. Leggja af stað strax eftir skóla á miðvikudegi og heim eins seint á sunnudegi og hægt er. Ekkert betra en það! Heima er langbest.

Í kvöld er svona einhvers konar "uppskeruhátíð" hjá Hvíldarkletti, fyrirtækinu sem ég var að vinna hja síðastliðin tvö sumur, þannig að það verður fjör. Matur og skemmtiatriði á Vagninum og svo eftir það verður haldið dansiball. Djammað að vestfirskum sið, það gerist ekki betra. F1 Rauður stendur að sjálfsögðu fyrir balli sem hefur hingað til ekki klikkað þannig að ég geri miklar væntingar. Hvað sem líður verður þetta eflaust gaman, það getur varla klikkað að kíkja aðeins út á lífið með öllu uppáhalds fólkinu mínu. Stelpurnar stefna eiginlega allar á það að koma á ball þannig að ég er bara mjög jákvæð og bjartsýn. Annars er ótrúlega erfitt að vera komin vestur líka, hitta alla og sjá allt gamla góða. Ég kvíði fyrir því að keyra heim á morgun. Ég er alveg viss um að ég verð treg á því að stíga út í bíl og keyra í burtu, þó svo að það sé stutt þangað til að ég kem aftur. Mig langar helst bara að vera hérna áfram, alltaf. Ég hélt að það yrði svo fínt að komast í burtu og prófa eitthvað nýtt, en ég er búin að prófa það í tvo mánuði og mér finnst það bara fínt í bili. En neinei, það er ekki hægt að hugsa svona. Reykjavík hefur líka sína kosti og ég verð að herða upp hugann og yfirgefa Vestfirði, but I will be back! I'll always be back.

Annars ætla ég ekkert að hafa þetta neitt mikið lengra. Bíð bara með eftirvæntingu og spenningi eftir kvöldinu. Vona að það heppnist vel og ég hef enga trú á öðru. Þannig að ég kveð bara í bili, frá Súgundafirði, þar er ég stödd í augnablikinu.
Heyrumst fljótlega :)
Jónína Rut.

2 comments:

Anonymous said...

Ég vildi að ég hefði getað komið með ykkur vestur!
En það eru samt bara 11 dagar þangað til við förum :D Hlakka svo til ...! :D
En skemmtið ykkur í kvöld, ég skal hugsa til þín meðan ég er að syngja vögguísu fyrir Söndru hahah!
En miss jú beibz;*(L)
-Saramamma

Anonymous said...

Vildi bara segja að það var gaman að hitta þig á föstudaginn, alltaf gaman að hitta þig sæta :*
Drífðu þig aftur heim, ætla að hitta þig betur þá !
Ingibjörg Rún