Sunday, August 10, 2008

Á morgun ...

... flyt ég til Reykjavíkur. Hversu scary er það? En ég er samt líka alveg megaspennt.

En það er samt eitt, ég er ekki búin að hafa neinn tíma til að kveðja neinn. Vegna þess að ég fór í þetta ferðalag, hef ég ekki haft neinn tíma. Ég er bara búin að vera að pakka niður síðustu daga og sinna minni heittelskuðu móður aðeins, vegna þess að ég veit ekki hvað hún á eftir að gera þegar ég fer. Það er svo gott "bond" á milli okkar, þannig að þetta verður erfitt.
Þetta verður erfitt líka því að ég á eftir að sakna svo margra. Allra stelpnanna á Ísafirði - Anna Massa, Arna Sigríður, Hafrún, Ingibjörg, Lísa, Nína Guðrún, Ólafía, Salvör, Snædís, Steinunn og Telma. Ég á eftir að sakna ykkar allra svo mikið, en það verður svo gaman að koma í heimsókn - og ég ætla að vera dugleg í því. Fleiri góðir í menntaskólanum á Ísafirði, ég býst við því að ég eigi bara eftir að sakna MÍ almennt.
Allra Flateyringanna, Eyja, Linda, Jovan, Hrefna, Smári, Maggi, Jói, Nonni Legend .. Og allir aðrir sem eru mér kærir. Þetta verður erfitt, en ég hlakka bara svo til að koma aftur í heimsókn og geta djammað "Vestfirðir style". Það verður sko alvöru. Þannig að ég bið ykkur bara svo innilega vel að lifa þangað til næst, hafiði það endanlega gott og mér finnst svo leiðinlegt að hafa ekki getað kvatt ykkur almennilega. Sérstaklega ykkur, Linda og Hrefna. da-devils, ykkar verður sárt saknað!

En ég kveð í bili, kassarnir og ferðatöskurnar bíða.
Endilega verðið dugleg að slúðra á msn og skilja eftir comment á síðunni minni - þá skal ég vera dugleg að blogga.
Heyrumst fljótlega :)
Jónína Rut

1 comment:

Anonymous said...

Hæhæ skutla....jæja hvernig er að vera orðin borgarbúi ?? Ég efast ekki um að þú átt eftir að standa þig vel.....hef óbilandi trú á þér.....heyrumst fljótlega á msn..... Kveðja Sirrý Hríseyjarbúi