... sagði Svavar þegar hann sá dauðan fugl á götunni, virkilega subbulegt. En annars var ferðalagið okkar geggjað, frábært veður, skemmtileg lög í græjunum, gott skap, fallegt umhverfi og kósíheit. Ég komst að ofsalega mörgu í þessu ferðalagi, m.a. :
-það er mega dýrt að ferðast um Ísland.
-maður man ekki helminginn af því sem maður hefur upplifað á ferðalögum með foreldrum sínum, þess vegna er nauðsynlegt og ótrúlega skemmtilegt að gera þetta allt saman aftur.
-Ólafsvík er ótrúlega fallegur bær.
-Bónus borgar sig margfalt, það er án efa ekkert bruðl!
-Húsafell er awesome.
Já, við höfðum það alveg ótrúlega gott og þetta var ekkert smá fínt og við erum alveg vel útitekin og sæl. Kíktum í bústað til Alla og Töru, fengum gott grill og spiluðum og skelltum okkur í pottinn. Það var geðveikt. Og við erum ekkert lítið ánægð með þessa ferð, þó hún hafi kostað okkur aleiguna. Neinei, segi svona. Við erum búin að vera svo dugleg að vinna að við máttum sko alveg leyfa okkur þetta. En ferðasagan mín verður ekki lengri í dag.
Ég ákvað sumsé að búa mér til blogg. Ákvað að blogga á blogspot.com bara svona til tilbreytingar, held ég eigi eftir að fíla það fínt. Þar sem ég er að fara að flytja suður eftir skuggalega stuttan tíma ákvað ég að byrja að halda uppi bloggsíðu svo að þeir sem vilja geti fylgst með ferðum mínum í borg óttans. Ég og Svavar skoðuðum íbúðina okkar i gær og okkur líkar svona líka vel við hana, þetta verður alveg geggjað. Ég ætla að gera þetta svo kósí og mín heittelskaða mamma verður örugglega mín hægri hönd í þeim málum þegar hún kemur suður í heimsókn.
En annars ætla ég ekkert að hafa þetta neitt mikið lengra því að ég ætla að hjálpa mömmu að elda lasagnea, ó ég elska lasagnea!:) Laga þessa síðu eitthvað á næstunni, kannski þegar ég er búin að koma mér fyrir í kotinu mínu. Flytjum næsta sunnudag, allt mega spennó.
En já, takk fyrir mig.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment