Wednesday, August 13, 2008

Áskorun ..

... á hana mömmu mína. Þar sem að ég fékk staðfestingu á því í dag að þú lest bloggið mitt, mín heittelskaða mamma þá ætla ég að skora á þig hérna opinberlega að reyna að koma sem fyrst suður. Þó svo að ég viti vel að þú komir um leið og þú getur þá fannst mér það bara hljóma svo "kúl" svona á netinu. En já mamma, þú verður ánægð þegar þú kemur í heimsókn í Litlagerði til okkar Svavars, þetta er orðið svo kósí hjá okkur. Við kláruðum að koma öllu fyrir í dag og við erum ótrúlega ánægð með útkomuna. Þetta er eins kósí og það gerist í svona litlu rými. Mamma, þú verður stolt af mér. Láttu mig samt vita tímalega svo ég geti ryksugað útí horn og undir rúmi, þá verður þetta allt blessað :) Hahah nei ég er að grínast mamma mín, þetta verður frábært. Ég ætla að kaupa neskaffi næst þegar ég fer í bónust og þá er ég tilbúin til að fá þig í heimsókn :) Og ég hlakka svo til !

En jæja, nú ætla ég að gerast vongóð og hætta að blogga eins og þú sért eini lesandinn minn, mín kæra mamma. (Og reyndar Sirrý mín líka, love) Hæ allir! Ég er sumsé bara í góðum gír í bænum. Auður og Hrefna komu í heimsókn í gær til mín og Matthildur og Ólafía í dag, það var ótrúlega gaman.
Núna er rúm vika í að skólinn byrji, smá spenningur í gangi en líka pínu stress. Verð að viðurkenna það. Það er svo skrítið að fara úr 300 manna skóla í bara guð, ég veit ekki hvað stóran skóla.. En þetta verður allt gaman!
Það er reyndar skrítið að lifa í svona kæruleysi, vera ekkert að vinna og gera bara það sem mig langar til að gera. Tíminn líður reyndar alveg ótrúlega hratt og oftar en ekki fæ ég sjokk þegar ég lít á klukkuna og hún er svona tveimur timum meira en ég bjóst við að hún væri.
Annars hef ég ofboðslega lítið að segja. Litla systir mín ætlar að koma í heimsókn í kotið okkar í endaðan ágúst, það verður stuð! Og svo er menningarnótt bara bráðum að skella á. Þá verður sko tekið á því pínu. (mamma lokaðu augunum, ekki lesa! haha) En það verður auðvitað bara eitthvað í hófi ;)
Sara kemur í bæinn um helgina.. Ég hlakka svo til! Það verður svo gott að fá hana, ég er búin að sakna þín kjánastelpa! Annars ætla ég ekkert að hafa þetta mikið lengra, klukkan er orðin hálf1 og þá held ég að það sé tímabært fyrir mig að fara að sofa. Ég er löngu hætt að geta vakið fram eftir, hvað þá heldur að sofa út. Ef ég sef til 10 þá er ég sátt!
Takk fyrir í bili.. Hafiði það gott :)

Jónína Rut

5 comments:

Anonymous said...

Elsku dúllan mín ég er alltaf stolt af þér og ég hlakka ótrúlega til að koma og fá neskaffi hjá þér og Svavari í litla hreiðrinu ykkar og efast ekkert um að það sé orðið kósý hjá ykkur en menningarnótt hvað? jæja orðið gott í bili sakna ykkar nú þegar, hafið það gott í borginni kv mamma

Anonymous said...

óó jááá :) ! það verður sko stuð þegar ég kem í bæinn :)
á ekkert að kaupa kakó eða BURN fyrir mig í bónus (hey) !? haha .. grín ;) !

well, það er mjög svo skrítið að vita af þér einhversstaðar þarna fyrir sunnan í þinni eigin íbúð að fá fólk í heimsók í þína íbúð :)

ég held þú verðir mjööög hamingjusöm að fá að vita það að þú þarft að vakna með mér klukkan 4 um nóttina, 29 ágúst til að skutla mér útá BSÍ :) ! takk fyrir kærlega.
og ég held þú verðir mjööög hamingjusöm líka að vita það að þú þarft líklega að vakna klukkan 8 um morguninn 6.október til að skutla mér uppá tannlæknastofu berglindar, þar sem að ég er að fara að losna við spangir, takk fyrir - góðan daginn :)

well, ég elska þig óóótrúlega mikið og er nú þegar farin að sakna þín :) elska þig.

SaraH said...

Girl!! Ég var bara að sjá núna að þú værir komin með blogspot:O
En i can't wait to see your íbúð haha:D
En morgundagurinn bara eftir þá er ég loksins hætt að vinna og að koma suður:D
En sé þig feitast á laugard ! Eg ætla sko að koma og sjá íbúðina :)
En miss jú and luv jú beibikeiks;**
- Sara Kjáni

Anonymous said...

Sæææta Jónína
Ég kem suður á fimmtudaginn eftir viku og ætla pottþétt að hitta þig þá, fer út á sunnudeginum eftir menningarnótt :)
Hlakka til að sja´þetta allt hjá ykkur ef að ég get og á eftir að sakna þín alveg helling! :)

Farðu vel með þig elskan :)

Kv.Ingibjörg Elín Noregsfari

Anonymous said...

Aww .. frábært að þið hafir það gott þarna í reykjavík. Ég sakna þín already !
Elska þig.<33

-Hrefna Erlinda.