Annars já, við ætlum sumsé heim í því tilefni að það er langa helgin í skólanum, við erum þyrstar í djamm og mig langar óhemju mikið að geta kúrt mig uppí sófa heima hjá mömmu og hafa það næs. Þannig að hvernig sem þessi helgi fer, þá getur hún ekki klikkað. Heima í Önundarfirðinum mínum, í mjög stuttri fjarlægð frá öllum mínum uppáhalds vinkonu og öllum þeim sem ég held mest uppá. Ég ætla nú reyndar að skilja hann Svavar eftir í stórborginni, vona að hann fari sér ekki af voða. Nei, ég held að það verði allt í lagi með hann. Fínt að fá smá frí frá hvort öðru, en það að hann sé eftir í reykjavík gerir það líka örugglega aðeins auðveldara að yfirgefa flateyri og keyra suður á sunnudaginn. Já, ég ætlaði nú ekki að drekkja ykkur lesendum góðum í söknuði og tal um Flateyri. Þar verð ég allavega um helgina og ég get ekki beðið!

Það er 40% afsláttur í Dressmann út þessa viku, og það þykir mér ekki slæmt. Allavega slysuðumst ég og Svavar þangað inn í gær og náðum að nýta okkur þennan líka svakalega afslátt. Gátum keypt tvær peysur og tvær buxur fyrir undir 10 þúsund kall og þetta voru fínar flíkur. Ótrúlega sátt við að hafa gert þessi kjarakaup. Aldrei leiðinlegt að spara og eiga nýdressaðan kærasta!
Já, það er aldeilis gaman að vera til á Íslandi í dag. Ætla reyndar ekkert að ræða um það í þessu bloggi, nóg er um þetta rætt þannig að ég ætla ekkert að fara að bæta neitt ofan á það. Ég er bara fegin að vera ung og ekki með nein lán eða neitt svoleiðis. Þetta er svakalegt, það er það eina sem ég segi. Alveg svakalegt! En ég ætla ekki að hugsa um það því að ég er að fara til Flateyrar í dag og það tekur alla depurð, áhyggjur og leiðindi í burtu. Flateyriiiiiii !
Annars nenni ég ekkert að hafa þetta neitt mikið lengra, þarf að fara að klára að gera ýmislegt svo að hægt sé að fara í burtu frá borginni. Takk fyrir mig
Jónína Rut :)
2 comments:
bGóða ferð vestur og farið varlega i hálkunni bið að heilsa öllum sem eg þekki kveðja frá okkur i sverige
Mig langar í Thai Koon ..
-Margrét Alda
Post a Comment