Hæbb.
Jæja, það er kominn þriðjudagur. Skóladagurinn búinn. Skólinn til hálffjögur í dag og líka í gær og núna er bara tjill framundan. Til hálf þrjú á morgun og svo er bara smá skóli á fimmtudag og föstudag. Það verður busun á fimmtudaginn í FÁ, gaman að sjá hvernig meðferð busarnir fá í þessum skóla hérna. Þannig að það verður bara skóli til 10, sem að er ekki leiðinlegt. Svo er Busaball á fimmtudaginn, ég ætla sko ekki að fara. Ætla ekki að eyða peningnum mínum í það að djamma á fimmtudegi. Talandi um fimmtudaginn, þá er 11. september. Sem þýðir bara eitt - Matthildur verður 18 ára gömul. Og það þýðir að Matthildur ætlar að halda uppá afmælið sitt með smá teiti að ég held bráðum og ég hlakka svo til að djamma svona eins og í gamla daga, með stelpunum mínum :) Það verður mikil gleði.
Mamma og Gunnar komu suður um helgina, voru í sumarbústað rétt hjá Sandgerði og það var bara gaman. Ég og Svavar nutum þess alveg í botn að borða bara með þeim, liggja í heita pottinum og slappa af með þeim. Versta er að ég sakna þeirra bara ennþá meira fyrir vikið. En tíminn verður fljótur að líða, áður en ég veit af leggjum við Sara á stað vestur til að djamma og tjilla. Mamma, Gunnar og Laufey, ég elska ykkur :)
Annars er ég loksins komin með vinnu. Loksins! Fékk vinnu í Bakarameistaranum í Mjóddinni. Ætlaði ekki að vinna í sjoppu eða bakarí eða einhverju svoleiðis þar sem að freistingarnar eru á hverju strái, en ég ætla bara að vera dugleg! Ég ætla bara að vera ótrulega dugleg að fá mér ekki að borða þarna á hverjum degi. Annars líst mér bara vel á þetta, held að þetta sé skemmtileg vinna með skemmtilegum stelpum. Þannig að ég bíð bara spennt. Fer í svona prufu/aðlögun á föstudaginn og get svo bara byrjað að vinna asap. Um helgina held ég bara, það er frábært :) Vantar pening. Hlakka til að geta byrjað að hlakka til að fá útborgun um mánaðarmótin. Það verður frábært.
Annars nenni ég ekki að hafa þetta neitt mikið lengra. Sakna allra ótrúlega mikið, hata að vera með heimþrá. Anna Mazza og Ingibjörg mínar, þið eruð algjörar hetjur að vera þarna í útlöndunum. Hugsa oft til ykkar :) Og takk allir fyrir að vera svona duglegir að kommenta.
Kveðja, Jónína :)
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
4 comments:
Jónína gull :)
Takk sæta, það er stundum erfitt en maður verður bara að vera sterkur. Ótrúlega erfitt að vera í burtu frá fjölskyldu,kærasta(úff) og vinum svona langt í burtu, en ég er bara jákvæð :)
Endalaus ást frá Noregi!
Snakkes! ,)
Kv.IngibjörgElín sem er að bíða eftir greys anatomy seríunni ;) takk gull
Hæ Jónína alltaf gaman að lesa bloggin þin :)
hlakka svo til afmælisins hennar Matthildar og gaman að þú verðir þar líka :D vúhúú
Hlakka til að sjá þig ;*
kveðja Ólafía
Hæ skvís
frábært að þú sért komin neð vinna vona svo sannarlega að þú verðir ánægð þar,þannig að nú verður mikið að gera og þessi mánuður þangað til þú kemur eldfljótur að líða ég hlakka svo til love you ljúfan mín kv mömmuknús
Hæ Jónína
Ákvað að skilja eftir mig smá spor :) Gaman að geta fylgst með þér og hafðu það gott í Reykjavík.
Kveðja Snædís
Post a Comment