
... hvert hafa peningarnir mínir horfið ? Shit! Þetta er gallinn við að búa í Reykjavík, freistingar allstaðar. En ég og Svavar ætlum að finna ráð við því. We will survive, eins og maðurinn sagði hérna í gamla daga. En Reykjavík er ekkert lamb að leika sér við, svo mikið er víst. Svavar, eða við vorum að kaupa okkur leyndarmál í dag. Ég ætla ekki að skrifa það hérna því að það á að koma á óvart þegar litla systir mín kemur í heimsókn og mamma og gunnar og fleiri góðir. Þetta er gaman. Núna erum við líka bara hætt að eyða. Búin að kaupa okkur allt sem okkur vantar, ég ætla að kaupa mér kort í ræktina á morgun og þá lokum við líka bara á öll útgjöld nema Bónust í bráðri neyð og leiguna mánaðarlega að sjálfsögðu. Ekki viljum við að okkur sé hent út, óneinei.
Fólkið á efri hæðinni er ofsalega næs, og það er alltaf einhver í heimsókn hjá þeim, þau eru sko popjúlar. Annað en við hérna í kjallaranum. Hún er kennari og hann er í námi þannig að þau eru mikið bara heima við svona yfir sumartímann, og hún á greinilega margar vinkonur sem eru annað hvort líka kennarar eða í fæðingarorlofi eða svona mikið bara í sumarfríi. Allavega er alltaf einhver úti í garði að sötra kaffi með þeim ef að veður leyfir. Enda er ekkert að því, kannski bara pínu afbrýðssemi í mér því að ekki fer ég út með vinkonur í kaffi. Hahah, gaman að þessu.
Ég er búin að sækja um vinnu á milljón stöðum, þannig að ég bíð bara spennt eftir símtali (sem ég vonast til að fá sem fyrst) svo að ég geti skundað út á vinnumarkaðinn aftur og byrjað að þéna einhverja peninga aftur. Enda finnst mér fátt skemmtilegra en að eiga peninga.
En annars er bara gaman að þessu öllu saman. Barátta við eldavélina á hverju kvöldi, fullt af þvotti og uppvaski, ryksugan í góðum gír og allt þetta sem fylgir því að halda uppi heimili. Allar mæður sem og húsmæður án barna, heyr heyr! Þið eruð hetjur. Og sérstaklega þú, móðir mín góð. Endalaust elsk og sakn til þín.
Salvör var að lenda á klakanum í dag, komin frá Ítalíu. Ég og Sara ætlum að hitta hana eitthvað í kvöld, ég er búin að sakna hennar alltof mikið. Svo verður hún hérna um helgina en fer svo reyndar heim í Dýrafjörðinn eftir helgi, sem að sökkar. Vildi óska þess að hún gæti bara búið líka í Reykjavík með okkur stöllum, en við erum búnar að panta að hún verði dugleg að koma í heimsókn í bæinn, og ég efast ekki um það.
Annars ætla ég að fara að finna okkur eitthvað í gogginn, mamma, það er bara snarl í dag. Ég held að þriðjudagar verði snarldagar hjá okkur Svavari.
Sakna ykkar allra fyrir vestan strax, þetta verður hræðilegt í vetur. Ég er bara búin að vera í burtu í viku en samt strax komin með pínu heimþrá. Ég held það sé tilhugsunin um veturinn sem lætur mér líða þannig. En ég er sterk stelpa og get þetta alveg.
Þangað til næst, auf blessuð!
Jónína :)
7 comments:
Já Jónina you will be strong!:)
Þetta verður fljót að líða, það er svo mikið að gera hjá okkur, áður en við vitum af verðum við fyrir vestan í heimsókn:D
En síjú eftir 30 min beibý;*
Lov jú:*
Elsku litla húsmóðirin bara allveg brjálað að gera hjá þér,þú ferð létt með þetta, en mundu bara eins og ég hef nokkru sinnum sagt ef maður gengur vel um þá er minna að taka til hvað eldavélina varðar þá er ég viss um að þú sigrar þá baráttu.´Það eru bara nokkrir dagar liðnir en ég sakna ykkar mjög mikið en það stittist nú óðum í suðurferð og þá verður drukkið kaffi hjá þér, en þangað til farið vel með ykkur og passið aurinn ykkar EKKERT BRUÐL kv mamma
JÓNÍNA ÉG SAKNA ÞÍN :´( VILDI ÓSKA ÞESS AÐ ÞÚ KÆMIR BARA HEIM....... en samt gott að heyra það að þið hafið það sem allra best. Ég kannast við það að eiga engan pening þegar maður býr í RVK. Það eru allt of miklar freistingar út um allt. Alveg sama inn í hvaða búð maður fer þá kemur maður út með poka :D Alveg eins og maður er út í útlöndum sem ég er að fara eftir 49 daga!!! JEIIIIIIIII ;D SAKNA ÞÍN...... VARÐ AÐ SEGJA ÞETTA AFTUR :D Hvenær kemurðu í heimsókn vestur???? vonandi ekki akkurat þegar ég er í Boston eða í RVK???? Jæja dúllurassinn minn ég heyri vonandi í þér brálega. Hafið það sem allra best. Skilaðu kveðju til Svavars frá mér. ÉG SAKNA ÞÍN SÁRT :***** LOVJÚ
Kv Eyja sem er með mikinn söknuð í hjarta sínu :´(
hæ elsku besta systir mín :)
jáá, þú verður sterk :)
þér er líka sárt saknað hérna fyrir vestan :)
jeijj ég hlakka til að koma til þín :) ég elska þig svo mikið, rúsínubomba :) neii djók, þér líkar ekki vel við rúsínur - súkkulaðirúsínur ?
nei ókei, ég er farin að bulla.
well, ég hlakka til að koma til ykkar og sjá það sem þið voruð að kaupa :) og ég hlakka mergjaðslega til að fá ykkur með mér í gítarkaup :) engin mamma, enginn pabbi; bara jónína og svavar :) yayy! it's gonna be awesome (tom's voice)
well, ég elska þig mestast og sakna þín alveg uppí geim og aftur heim :) bið að heilsa kúkalabba :) haha.
elska þig mestast ;*
// litla systirin sem er að fara ða tala við danny jones í síma :D !!!
Hæhæ Reykjavíkurmær......alltaf er nú gaman að lesa það sem þú skrifar.....sjaldan komist í tæri við jafn snilldarpenna....haltu áfram að blogga þetta er lesningin mín á morgnana með kaffinu (og konfektinu sem er í boði í dag með ) En ég skil mömmu þína vel að sakna þín þetta eru mikil viðbrigði fyrir hana já og þig líka.....en þú stendur þig pottþétt vel og mamma þín venst þessu...(vonandi)
Kannski fær maður kaffi ef maður nennir að koma í borgina. Það er svo gott að vera í eyjunni.
Kossar og knús
Sirrý
Flateyri skilar kveðju, er farinn að sakna þín hellings.
Kveðja Flateyri.
Halló halló hvar eru allar fréttirnar úr borginni það hlýtur að vera eitthvað meira að ske hjá þér svona fyrir okkur sem lesum yfir kaffibollanum.elska þig stelpan mín kv mamma
Post a Comment