Wednesday, August 27, 2008

Back to reality.

Ójá, skólinn byrjaður - þá er ekki langt í prófin, heimalærdóm og þess háttar. Ég kann ágætlega við skólann. Ekki sátt samt sem áður við bílastæðisleysi sem veldur endalausum óþægindum. Mér finnst líka eitt ábótavant sambandi við þennan skóla, það er skipulag. Mér finnst til dæmis ekkert skipulag vera á tímunum. Hver tími er 50 mínútur en svo eru tveir tímar á dag sem að eru 70 mínútur, en það er gert til þess að jafna út mismunin þar sem að það eiga að vera einhver x mikið af mínútum kenndar á viku. Á Ísafirði er hver tími bara 60 mínútur, 15(eða er það 20 mínútur, man það ekki alveg) í frímínútur og háfltími í hádegi. Hérna er maður heppin ef maður fær 15 í hádegi! Þetta er ekki sniðugt og að þessu leyti sakna ég MÍ. Og líka að því leyti að sumar kennslustofur eru ekki í skólabyggingunni sjálfri, það er alveg óþolandi. Þarf að labba yfir nokkrar götur og eitthvað til að komast í fjölmiðlafræði, og það þykir mér ekkert kúl. Fjölmiðlafræði er samt örugglega skemmtilegasti tíminn minn þannig að ætli maður leggji það nú ekki á sig. Það er nú skemmtilegt að segja frá því að SÁL 303 sem ég er að taka núna, í þeim áfanga eru bara stelpur. Það er nokkuð skemmtilegt, fyndið í svona stórum skóla að enginn strákur hafi áhuga á því. En svona er þetta bara :)

Annars er allt fínt að frétta. Laufey er að koma í heimsókn í kotið á eftir, verður hjá okkur í tvo daga og fer svo á föstudagsmorguninn (snemma, klukkan 4 takk!) niður á BSÍ. Þannig að ég þarf bara að gjöra svo vel og vakna og skulta henni uppá BSÍ, það þýðir ekkert annað. Enda er það nú líka alveg hægt fyrir svona litlu systur. Allavega verður gaman að fá hana í heimsókn. Sérstaklega vegna þess að þá er bara vika í að mamma og Gunnar komi í bæinn! Ó hvað ég hlakka til að fá þau.
Menningarnótt búin, það var gaman. Föstudagskvöldið var fínt sko, fór á djammið með Auði, Hrólf og Hrefnu og það var bara gaman. Svo var ágætlega tekið á því á menningarnótt eins og ég var nú búin að lofa, fór reyndar heim snemma af sökum kulda og annarra ástæðna.
En ég vaknaði samt rúmlega átta og horfði á síðari hálfleikinn í handboltanum, það er nú nokkuð gott. Flottir strákarnir, ég er ótrulega stolt af þeim.
En annars ætla ég bara að fara að ryksuga, annars verður Laufey brjáluð þegar hún kemur í heimsókn. Hún verður sko ekki sátt ef að það verður drasl, hún er búin að gefa mér skýrar upplýsingar um það.
En annars takk fyrir í dag. Ég sakna Flateyrar og Ísafjarðar.
Bæææ.
Jónína :)

4 comments:

Anonymous said...

DUDEE !!! hvaða skóla ertu í og hvað ertu að læra?? !!!

kv. eddilitli

Anonymous said...

ég er nú bara í FÁ og er að klára félagsfræðibraut :)

Anonymous said...

hæhæ sæta mín, langt síðan ég hef séð þig eða heyrt í þér. Þú verður að fara að láta heyra í þér! Sakna þín geggjað mikið;* en ég og smári verðum bara að gera okkur ferð eitthvern tíman suður og kíkja á ykkur í kotið og taka smá djamm saman. En já ef þú hefur eitthvern tíman dauðan tíma þá máttu endilega láta heyra í þér, langar að heyra í þér;* Love you longtime;** Kv. Telma Björk

Anonymous said...

Sakna þín sæta, takk fyrir að vera svona dugleg að kommenta hja mé r:)
Knúsknús og kossar!!

Kveðja frá Geilo-stelpunni :)
Ingibjörg Elín