Monday, November 24, 2008

Jákvæðnin í lágmarki.

Bensínljós, vanlíðan, peningaskortur, núðlur, heimþrá, áhyggjur...

...Allt eru þetta orð sem að má nota til að lýsa síðastliðnum ca. fjórum mánuðum. Og ég bíð óþreyjufull eftir að þessu ljúki og það sem áður einkenndi tilveru mína láti vita af sér á ný. Gleði, peningar, djamm, vinir, fjölskyldan. Fyrst og fremst hamingjusemi. Ég get ekki beðið eftir að finna fyrir hamingjusemi að nýju. Algjörri hamingjusemi. Þar sem mér finnst ég ekki vanta neitt, þar sem ég hef allt sem ég þarf til að vera á lífi. Nema í þessu tilviki Söru elskuna mína, en sem betur fer aðeins um tímaskeið þar sem hún kemur vestur áður en ég veit af. Ég hlakka svo til þegar bókstafleg merking orðanna "fátækur námsmaður" á ekki við mig lengur. Þegar ég get bara búið hjá mömmu minni og Gunnari stjúppabba mínum, með litlu systir mína í næsta herbergi. Borðað með þeim og spjallað um lífið og tilveruna. Sótt skóla á Ísafirði þar sem allir mínir helstu vinir eru og haft Eyrargötu 1 sem annað heimili, heimilið hans Svavars. Djammað eins og ég var vön að gera fyrir vestan og legið í leti eins og ég var líka vön að gera. Leyft öllum heimsins áhyggjum að hverfa af mínum öxlum og hafa bara áhyggjur af því gamla góða...
Já eins og vel má lesa úr þessum orðum mínum þá á borgarlífið ekkert svo alltof vel við mig. Ég elska Reykjavík og get vel hugsað mér að búa hér í framtíðinni en að svo stöddu er hjartað á Flateyri. Og af því er ég ekkert nema stolt. Ég og Svavar fórum suður með það fyrir leiðarljósi að prófa eitthvað nýtt, mennta okkur og sjá hvernig við myndum "fúnkera" í borginni. Við gerðum það eftir bestu geti og tókum sameiginlega ákvörðum um það að fara bara heim aftur. Um óákveðinn tíma, þetta verður allt saman að koma í ljós. Áætlaður langþráður komudagur heim á litlu elskulegu Flateyri mína er 4.desember ef allt fer eftir óskum. Ég náði nefnilega að ganga frá því þannig að ég get fengið að taka síðasta prófið mitt (sem er þann 10. des) í gamla skólanum mínum á Flateyri. Þar ætlar einhver frábær einstaklingur að bjarga mér og sitja yfir mér þreyta íslenskupróf úr ÍSL 503, guð hjálpi mér.

En annars er ég í prófum fyrsta, annan og fjórða og ætla ég mér bara að setjast beint uppí bíl og bruna af stað þegar síðasta prófinu er lokið.
Og ég hlakka svo til. Það er svo margt spennandi framundan. Ég þarf bara að þrauka þessa nokkru daga, klára prófin með prýði og leggja svo af stað heim á leið. Þá er ég viss um að jákvæðnin rýkur uppí hámark og hamingjusemi og gleði gera vart við sig á ný. Jólin og áramótin eru á næstu grösum. Það er ótrúlegt að hugsa til þess að það sé bara mánuður í þessi ósköp, en ég bíð spennt og tek þeim opnum örmum. Mér finnst svo gaman þegar fólk er að byrja að skreyta. Það er einn í götunni okkar komin með jólaljós útí garð, uppá þak og í gluggana. Það leyfir mér að brosa í skammdeginu.
Þetta blogg er heldur þunglyndislegra en síðasta blogg mitt þar sem það einkenndist af jákvæðum straumum, en ætli maður þurfi ekki að jafna þetta út aðeins. Annars þarf engar áhyggjur að hafa af mér, þetta er bara einn af þessum slæmu dögum sem maður fær nú stundum. En tilhugsunin um það að ég komi heim eftir 10 daga (og þeim fer fækkandi) heldur mér gangandi, og að sjálfsögðu núðlurnar góðu ! Ótrúlegt hvað þær geta slegið á hungur.

Annars ætla ég bara að láta þetta gott heita, vildi bara aðeins láta vita af mér og staðfesta komu mína á Flateyri þann fjórða ;) Takk fyrir mig í bili,
Jónína Borgarbúi.

7 comments:

Anonymous said...

Já Jónina min þetta verður fljott að lýða þu verður komin i mömmu kot áður en þú veist af óska ykkur góðs gengi Kveðja frá sverige

Anonymous said...

Ég trúi því bara ekki að þú sért að fara;O veruleikinn á eftir að slá mig í andlitið þegar þú ert farin!! :(
En eins og þú segir þá er tíminn svo fljótur að líða, þannig áður en ég veit af er ég komin aftur í sveitina;D Sumarið á eftir að vera æðislegt!!
En ég sé þig á morgun í skólanum beibý;*
Love jú ;D

Anonymous said...

Er það rétt talið hjá mér að það séu bara 10 dagar í að Hafrún geti knúsað Jónínu sína..?:D
Get ekki beðið sætust..;*

Anonymous said...

Vá ég er svo innilega sammála þér! það er ótrúlegt hvað manni hlakkaði til í að komast í burtu úr sveitinni en það er ekkert á við það að komast í hana aftur. Ég sakna þess að eiga pening og getað djammað og allra mest að hafa tíma til að hitta vinina! Maður hefur engan tíma bænum, bara endalaust skóli og vinna... alla veganna hjá mér. En hlakka til að sjá þig sæta og vona að maður sjái þig oftar þegar maður er flytur aftur í sveitina... ætti nú ekki að vera erfitt ;P hehe (K)(K)(K)

Kv. Elva;***

Anonymous said...

TÍU DAGAR! TÍU DAGAR! TÍU DAGARRR!

þú minntist á mig í blogginu, veistu hver ég er?

well jónínaaa! litla systir elskar þiggg! -- mér finnst eins og ég sé að tala við látna manneskju, það er svo langt síðan ég sá þig. ;s

sko í alvöru, ég höndla ekki flateyri án þín jónína! :/ .. ég hata það nóg að búa hérna án þess að fallegasta manneskjan flytji í burtu! :( .. þú ert svoooo skemmtileg!
jafnvel þótt ég væri alveg til í eina reykjarvíkurferð áður en þú kemur heim! ..
en samt ekki! afþví að ef ég kæmi til þín, þá myndi ég hitta þig einhvað! mig langarfrekar að vera spennt yfir að fá þig heim afturrr! og hitta þig þá!

.. ég fæ bara frekar rúnt á ísafjörð og ÉG býð ÞÉR ís í peningaleysinu þínu! ;) ég er nefninlega að vinna, sjáðu til!

well.. ég ætlaði eiginlega bara að gera stutt komment um að ég saknaði þín og hlakkaði til að fá þig heim! .. en svo bara elska ég þig svo mikið að mér fannst ég þurfa að segja einhvað meira! ..

TÍU DAGAR! TÍU DAGAR! TÍU DAGAR!
þú verður að þrauka jónínaa...
þú ert með nýja númerið mitt ef þig vantar einhvern til að tala við ;).. me´r leiðist nefninlega svolítið þessa dagana, og á það til að vera kölluð dramaDROTTNING! :) mér veitir ekki af að tala pínu við þig kannski bara.. heyra einhvað annað heldur en vælið í sjálfri mér um flateyri og tómleikann hérna! haha

elska þig!

Anonymous said...

Ég fæ semsagt að hitta þig áður en að ég fer aftur heim í borg óttans ? Mikið er ég nú fegin.
Þetta er eins og ég hef alltaf sagt, Ísafjörður - Flateyrin er besti staður í heiminum.
Erum alveg greinilega sammála um það sæta mín.
Hlakka til að sjá þig eftir mjög fáa daga ;)
Ingibjörg

Anonymous said...

ég vill blogg!!!
- Sara