
Jæja, núna er ég jákvæð. Ég er búin að ákveða að ég ætla að reyna að vera jákvæð alla þessa viku. Það er gaman að vera jákvæður og láta sér hlakka til ýmissa hluta. Í dag veit ég að það eru 19 skóladagar eftir. Í dag veit ég að það eru ca. 38 dagar þangað til að ég flyt vestur aftur. Í dag veit ég að allt gengur upp með leiguna og við þurfum ekki að borga leigu fyrir desember mánuð. Í dag veit ég að ég er dugleg í vinnunni minni og það sem ég geri þar er vel metið og mér var boðið að verða vaktstjóri, sem er ekki slæmt eftir einn og hálfan mánuð. Í dag veit ég að ef ég verð dugleg að mæta í skólann þá verður mætingin mín bara miklu miklu betri en ég átti von á í lok annarinnar. Í dag veit ég að ég á frábæran kærasta, frábæra fjölskyldu og yndislega vini. Í dag veit ég að það er ball með Páli Óskari á fimmtudaginn næstkomandi í skólanum mínum og ég ætla kannski að láta sjá mig þar. Í dag veit ég að ég get látið mér hlakka til næstu helgi því að þá þarf ég ekki að vinna og þá get ég bara leikið mér og hangið í leti.
Ég vona að ég hafi smitað einhvern af jákvæðinni minni. Maður á að reyna að vera meðvitaður um það sem maður á og það sem maður gerir vel og reyna að einblína á það í staðinn fyrir allt það slæma. Ég ætla að gera það. Ég lifi góðu lífi og ég er þakklát fyrir það.
Í gær lét ég loksins verða að því að keyra til Grindavíkur með honum Svavari að heimsækja Helgu Jónínu frænku mína og Gumma. Fjölskyldan þeirra er yndisleg, hún á þrjú yndisleg börn og það var svo gaman að kíkja í heimsókn til þeirra. Svo var mér boðið til Ragga frænda og Tótu frænku í mat í gærkvöldi. Ég og Svavar fórum þangað og gæddum okkur á alvöru lambalæri með öllu tilheyrandi, það var svo ljúft. Þar var líka hann Kristján Atli uppáhalds frændi, með Lilju konunni sinni og yndislegu litlu stelpunni þeirra. Það er svo gaman hvað börn geta gert fyrir mann. Börn geta glatt svo mikið. Ég á svo mikið af æðislegum frændsystkinum. Þetta var frábær dagur. Ég var reyndar orðin svolítið þreytt þegar við komum svo loksins heim því að ég var líka að vinna í gærmorgun. Þannig að það var ekki leiðinlegt að leggjast á koddann í gærkvöldi, loka augunum og steinrotast!
Annars ætla ég ekkert að hafa þetta neitt mikið lengra. Ætla bara að fara að hlusta á hann Björgvin í fjölmiðlafræði. Það er nú ágætur tími.
En ég heyri í ykkur, veriði góð við allt og alla.
Bææææ ;)
8 comments:
Jónína, þú ert svo jákvæð:) Gott hjá þér..
Hlakka svo til jólanna og vera með ykkur gellunum mínum!
Miss you:)
Kveðja Ingibjörg Elín!:)
Það er alltaf gott að vera jákvæður... Og til hamingju með vaktstjórstöuna duglega stelpa ;)
Þetta á eftir að líða alltof hratt framhjá og þú verður komin heim í stofan hjá mömmu áður en þú veist af !
Sakna þín sæta stelpa..;*
Jónína mín í dag máttu líka vita að þú átt mömmu sem er SVOOOO stolt af þér og getur varla beðið eftir að fá þig heim en allavega hittumst eftir rúma viku þegar ég skrepp í borgina mömmuknús
Vá þú smitaðir mig af jákvæðninni =D
Kv. Matthildur
Heyrðu góða mín við förum á Pallaball=D
- kjánaprikið
Þú náðir mér líka algjörlega í jákvæðnis-fíling! Mér finnst ég geta allt :D Hlakka til að hitta þig í desember ást
-Anna Massa :)
Blessuð frænka vá æðislekt að heira hvað þú ert jakvæð en viltu setja mömmu þina inn á msen hja mér kveðja jolly sverige
Heyrðu beibíkeik...
Verður að blogga !
Ingibjörg
Post a Comment