Thursday, October 30, 2008

Blogg, ræða það eitthvað eða ?

Já góðan daginn.
Það eru nú bara nokkrar vikur síðan ég bloggaði síðast, og það er ekki gott. En það hefur margt gerst síðan síðast þegar ég bloggaði. Ég og Sara fórum vestur og það var ekkert smá gaman. Við skemmtum okkur konunglega og það er alltaf gott að komast heim. Svo kom ég suður aftur og var búin að vera hér í 5 daga þegar ég fékk þær ömurlegu fréttir að afi minn lést, ætla ekkert að tala um það neitt annað en að ég elska afa og ég sakna hans og þetta er ömurlegt. En ég allavega fór vestur aftur á sunnudeginum og var bara fyrir vestan í viku. Miklu betra og bara nauðsynlegt að vera í faðmi fjölskyldunnar á svona erfiðum tíma. En það var mjög gott að geta bara komist heim og verið hjá þeim.

Annars fyrir utan þetta leiðindar atvik þá segi ég bara allt ágætt. Maður lærir að lifa með svona hlutum þó það sé erfitt. Ég og Svavar erum búin að ákveða það að við ætlum að flytja vestur eftir áramót. Ég get ekki beðið. Þannig að eftir nákvæmlega 42 daga verð ég flutt vestur aftur, og ég get ekki beðið. Ég get ekki hamið mig af spenning við að komast bara aftur vestur og búa hjá mömmu minni :) Það verður æðislegt. Ég ætla sumsé bara að klára jólaprófin og bruna svo bara vestur strax sama dag og síðasta prófi lýkur helst. Annars er bara brjálað að gera hjá mér þessa dagana. Brjálað að gera í skólanum því að eins og ég hef örugglega áður minnst á þá tekst kennurum alltaf að setja verkefni og próf á sömu dögunum, þannig að dagarnir mínir fara bara í það að vera í skóla og læra svo.

Ég ætla ekkert að hafa þetta neitt mikið lengra í bili, þarf að fara að fylgjast með í sögu. Heimsstyrjöldin Seinni er topicið núna, það er ekki leiðinlegt. Vildi bara láta vita að ég væri á lífi. Blogga fljótlega aftur :)
Bæ í bili.

4 comments:

Anonymous said...

Gott að heyra frá þér, hlakka svo til að fá þig aftur vestur! You take care :)

Anonymous said...

Elsku stelpan mín, samhryggist þér mðe afa þinn en hlakka meget meget til að þú komir heim aftur, það gengur ekkert að vera í bænum.
Ingibjörg Rún

Anonymous said...

Elsku Elsku stelpan mín, það var sko ekkert smá gott að fá þig heim þessa viku. Og mikið rosalega hlakka ég til að fá þig allveg heim, jafnvel þó ég geri mér grein fyrir því að það verður mikið að gera hjá þér innan um alla vinina en það verður líka bara gaman. heyrumst kv þín mamma

Anonymous said...

Ég get ekki beðið eftir að Jónínan mín komi heim eftir áramót:)
Hlakka endalaust til sæta mín:**
-Hafrún