Tuesday, September 2, 2008

Jæja..

... núna er orðið heimþrá búið að setja sér sinn sess í mínum orðaforða, það eru alveg óhreinar línur. Heimþrá, ég hata þig. Haha. Ekki gleðileg byrjun á bloggi, en þannig er mál með vöxtum að ég er búin að vera veik síðan á laugardaginn, og mér finnst ég ekkert vera að skána. Og ég held að það sé vegna þess að mömmutöfrar eru ekki hérna. Ekki það að Svavar sé ekki búinn að vera góður við mig, búinn að stjana við mig eins og ég sé drottning, en það er eitthvað svona "bond" milli manns og mömmu sinnar þegar maður er veikur og á bágt. Og ég vil fá það. En ég ætla nú ekki að væla, mamma og Gunnar eru að koma til Reykjavíkur um helgina, og ég pant fá að vera ekki veik þá!
En já, annars eru þetta búnir að vera erfiðir dagar undanfarið. Ég sakna Flateyrar, ég sakna MÍ, ég sakna fjölskyldu minnar og ég sakna allra vina minna! En nóg um vælið, ég kem heim áður en ég veit af. Tíminn er svo fljótur að líða.

Annars já, af sökum veikinda minna lítur íbúðin okkar ekkert alltof vel út. Ég á það til að vera mikill sóði (meira en venjulega) þegar ég er veik, sem er, að mér finnst, alveg skiljanlegt. Uppþvottur og skúringar er ekki alveg það fyrsta sem maður hugsar um þegar maður er með hita og kvef. En já allavega, due to that, þá er íbúðin okkar ekkert uppá marga fiska í útliti núna. En það lagast á morgun. Já, ég ætla að vera frísk á morgun! Ég ætla að fara í skólann, fara svo í ræktina ef að heilsan leyfir og setja svo á mig uppþvottahanska og taka mér skrúbb í hönd! Það verður action hérna á morgun, og það er eins gott að enginn verði á vegi mínum því að hann á ekki von á góðu skal ég segja þér.

En já, annars er sumsé ekkert mikið búið að gerast síðan ég bloggaði síðast. Auður varð sautján ára, komin með bílpróf og allt tilheyrandi, til hamingju enn og aftur með það ástin mín. Hmm.. Mamma mín er búin að fá sér msn og cheeriosið okkar Svavars er búið. Þannig er nú það, ég held að þetta sé svona það helsta.
Grey's Anatomy er gjörsamlega búið að bjarga mér yfir helgina. Búin að klára fyrstu og aðra seríu og er að byrja á þriðju. Ég get sko horft endalaust á þessa þætti, aftur og aftur. Þannig að ég ætla bara að kveðja í bili, það bíður mín spennandi þáttur og eitthvað óvænt í kvöldmat því að Svavar ætlar að sjá um að elda. Það er stundum pínulítið gott að vera veikur. Haha. Nei maður má ekki segja svona, be careful what you wish for segi ég nú bara.
Annars, bless í bili.
Jónína

10 comments:

Anonymous said...

Ég veit hvernig þér líður varðandi heimþránna :) en þá er það bara að bíta fast á jaxlinn! :D

Ég sakna stundanna sem við vinkonurnar allar áttum saman í skólanum alveg hrikalega mikið... við erum góðar saman :) en ég óska þér alls hins besta í stórborginni elsku Jónína mín :)

Kv. Anna Marzellíusardóttir á Spáni =)

Anonymous said...

Elsku dúllan mín það er allveg jafn ömurlegt fyrir mig að vita af þér veikri og geta ekki veitt þér mömmu knús og stjan, en vonandi ert þú nú að hressast og það verður gaman að hittast á morgun þangað til kossar og knús frá mömmu

Anonymous said...

Hæhæ sæta....
Sendi þér baráttukveðjur héðan ....Get allavega sagt þér eitt að það tekur engin draslið og uppvaskið frá þér, ég er búin að rannsaka það OFT.
Kossar og knús á þig Jo9 !!!
Kveðja
Sirrý

Anonymous said...

Láttu þér bara batna mín kæra og láttu heimþrána alveg fara í gegnum þig alla svo að þú ákveður nú að koma aftur heim og koma í skólann með mér.
Núna er ég að spá í að fara í Önundarfjörðinn og keyra fram hjá húsinu þínu, bara svona út af því að ég get það ;*
Ingibjörg Rún

Anonymous said...

Ég myndi nú ekki mótmæla því að fá ykkur allar aftur, það vantar stóran hluta í þennan góða vinahóp okkar :) Maður finnur svo sannarlega fyrir því.
Söknuður frá Ísafirði, kv. Lísa. :)

Anonymous said...

Sko mig! Fann bloggsíðuna þína! Tek það sérstaklega fram að ég þurfti að google-a nafninu þínu. 8-) En já.. Heimþrá segir þú? Þú hlýtur að koma í heimsókn fljótlega. :D Ég kem suður 17. sept. til að laga "grillið" mitt. Ég stoppa ekki lengi held ég. Það er ekki hægt að fá frí í þessum skóla hérna. :/ Afhverju varð 17. sept. ekki föstudagur!?

Annars,
sakna þín óendanlega mikið! Take care!

- Linda.

Anonymous said...

Kæra Jónína Rut.

Ég óska hér með eftir nýju bloggi frá lífinu úr reykjavíkinni/höfuðborgarsvæðinu .. Hvar sem þið eruð nú staðsett nákvæmlega hef ég ekki hugmynd um .. Eða júú ég veit það en veit ekki hvað bæjarhluta það tilheyrir ! Haha .. Allaveg rétt hjá Pizza Hut Höllinni og Langasandi held ég að þetta svæði heiti .. Vó, kúlaða ég !

En allavega nýtt blogg væri kúl :D


Kv.
Margrét Alda verðandi skagfirðingur jájá...

Anonymous said...

Held samt að það heiti Sprengisandur .. Því Langisandur er nú barasta á Skaganum.. Afsakið hlé ..

-Ég aftur ..

Anonymous said...

Blogg kona, ég er búin, þannig að þú ert næst !
Ingibjörg Rún

Anonymous said...

Hæ hæ sæta mín takk fyrir síðast
mikið var nú gaman að koma og hitta ykkur og sjá hvað er fínt í litlu sætu íbúðinni ykkar svo var líka gaman að eyða helginni saman í bústaðnum og á ljósanótt en er strax farinn að hlakka til þegar þú kemur vestur í okt bara gaman,
elska þig knús og kossar mamma